Blogg

8.2.2010

Hugleiðingar vikunnar

Þar sem að Herdís gart ekki sjálf bögglað samann vísu verð ég að tiltla mig sigurvegara í þessari lotu..
Evrusjón var um helgina og ég er yfir mig hneykslaður á því að við skulum vera að senda frá okkur útlent lag og það ekki bara á einu erendu tungumáli heldur tveimur.   Mín skoðun er að framlag Hvanndalsbræðra hafi verið lang Íslenskast og skildi þar með vera sent án frekari atkvæðagreiðslna!!
Og svo finnst mér að með hefðu átt að vera varaðir við áður en að Waterslide var spilað, það eru ekki allir með ælupoka í stofunni hjá sér og ég veit um fullt af fólki sem rétt náði inn á klósett til að æla...
Nýleg könnun á vegum vísindamanna við háskólann í Bristol bendir til þess að kattaeigendur séu gáfaðri en hundaeigendur svo að ég hef í framhaldinu ákveðið að losa mig við hundinn og fá mér kött af þeirri einföldu ástæðu að það finnast varla gáfaðri menn en ég í það minnsta ekki á lífi. meðfylgjandi er slóð á grein um málið:  http://www.dv.is/frettir/2010/2/8/kattaeigendur-klarari-en-hundaeigendur/
Það var komið til mín í vikunni og þess farið á leit við mig að ég gengi til samstarfs við Besta flokkinn en ég varð að hafna því vegna þess að ég er hræddur um að það gæti komið Lang - Besti flokkurinn og ég er ekki sáttur við að vera í flokki fyrir neðan einhvern... 

Orð dagsins:  Þekking án visku líkist útþynntri súpu.



Kveðja

Skúli Þór

Skrifað 8.2.2010 kl. 10:11 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.2.2010

Undir þrýstingi

Maður er bara rétt svo búinn að tilkynna upphaf nýs bloggtíma þegar að Herdís er komin með þrýsting á mig og heimtar hér svo gott sem daglegar skýrslur, ég verð að viðurkenna að líf mitt er nú bara ekki nógu spennandi til þess að það sé hægt.
Auk þess er margt sem að á daga mína drífur ekki þess efnis að ég geti birt það á opinberum miðli sem þessum enda ekki ætlað hjartveikum, viðkvæmum eða bakveikum...
Síðustu vikur hafa farið í að skipta um bíl og er þa orðin eina svaka langloka hjá mér og er staðan sú að ég sit uppi með svartann WV Polo eftir að vera búin  að  fá bensann borgaðann og er að spá í að fá mér bara annann bíl og eiga tvo af því að þessi Polo er verulega þægilegur í umferðinni og líka fer Unnar Heimir bráðlega að fá æfingaleyfi og gott að hafa bíl í það.
Ég er líka að vona að fall sé fararheill þar sem að fyrstu nóttina sem að ég átti bílinn þá var ég ræstur upp klukkan 3 af því að það var bíll búinn að klessa á nýja bílinn minn, þegar að ég kom út var enginn þar bara bíll og hafði hann þá runnið úr stæði við hliðina á bílinn minn....
Þegar að ég var búinn að finna út úr þessu var klukkan orðinn hálf fimm og ég feginn að komast í rúmið.. Nú er hann kominn úr sprautun og er hinn flottasti...

Svo lét ég hér fylgja vísu fyrir hana Herdísi mína:

Alltaf kem ég inn til þín
ef mér bregðast veiðar.
Þú ert alltaf Herdís mín
þægileg til reiðar.

Kveðja

Skúli Þór

Skrifað 1.2.2010 kl. 16:05 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.1.2010

Erfið helgi

Jæja þá er þessari erfiðu helgi lokið og maður er að jafna sig á öllum ósköpunum, þetta byrjaði á Herrakvöldi Fylkis sem að er viðburður ársins 900 kallar að úða í sig þorramat og hlusta á skemmtilega kalla fara með gamanmál.
Ég held að Freysi hafi átt útspil ársins þegar að hann var að tala um formann KSÍ og strippbúlluferð þeirra félaga og sagði "ÁTTA milljónir á strippstað HVAÐ GERÐI HÚN FÓR HÚN ÚR SKINNINU LÍKA!!!"

Daginn eftir var stefnan aðallega sett á að horfa á Tottenham - Leeds og Tottenham menn sluppu með skrekkin og fá aukaleik á Elland Road, væri alveg til í  að vera á vellinum þá.

Það hefur verið full rólegt í fasteignaviðskiptum síðustu mánuði svo að ég hefði svo sem átt að hafa nægann tíma til að blogga eitthvað en það hefur eitthvað verið erfitt að hafa sig af stað, ég læt svo eina stöku fylgja núna og ætla að reyna að vera duglegri í framtíðinni til dæmis skrifa sögu fyrir Lilju!!!!


Þó íslenska gengið sé valt,

og úti sé andskoti kalt,

með góðri kellingu í réttri stellingu,

bjargast yfirleitt allt.



Kveðja ''

Skúli Þór


Skrifað 25.1.2010 kl. 11:14 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.12.2009

Jæja er ekki kominn tími

Já ætli þessi bloggpása mín sé ekki orðin nógu löng að þessu sinni, þó svo að fésbókin sé góð til síns brúks þá eru alltaf einhverjir hlutir sem að ég þarf að koma frá mér, svo sem hugleiðingar um Icesave, Evrópusambandið, Leeds united, hvern er ég að plata það er ekkert sem að ég hef ekki skoðun á!!!
Ég á von á því að andinn hellist yfir mig á næstu dögum og jafnvel mun ég líka skrifa hér smásögur með til þess að hefja þetta blogg á hærra plan!!!

Kveðjur

Skúli Þór

Skrifað 27.12.2009 kl. 13:07 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 39
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 77
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 80783
Samtals gestir: 31439
Tölur uppfærðar: 9.2.2010 13:29:31