Blogg
17.3.2010
Aftur um listamannalaun
Rakst á þessa grein í morgun og bara varð að tjá mig lítilleg um hana:Segir hagsmuna almennings gætt með listamannalaunum Í þessari grein segir Oddný G. Harðardóttir "Það er erfiðara núna en áður þar sem fyrirtækin og heimilin leggja minna til listsköpunar," Hvaðan heldur hún að listamannalaun komi frá listamönnum ööö nei þeir borga yfirleitt ekki mikinn skatt nema þá kannski af listamannalaunum, jú peningar ríkisins koma frá almenningi!!! Svo segir hún "Tilgangur heiðurslaunanna hafi í upphafi verið sá að tryggja eldri listamönnum lífeyri sem þakklætisvott frá þjóðinni" ég skal þýða þetta fyrir ykkur. listamenn hafa ekki borgað skatt eða í lífeyrissjóð og eiga þar með engan ífeyri og við þurfum að borga það!!
Kveðja
Skúli Þór
Kveðja
Skúli Þór
17.3.2010
Skýrslan!!
Ég er að velta fyrir mér með þessa skýrslu sem að allir eru að bíða eftir og Sjálfstæðismenn vilja helst fá þingkosningar áður en að hún kemur út.. Eftir mínum upplýsingum er búið að prenta hana í Odda og að það verk hafi klárast í síðustu viku, eru þeir ennþá að fara yfir hana og far þá yfir öll eintökin með tippex áður en að hún er send í hús!!!
Eitthvað segir mér að annað hvort er þessi skýrsla hvorki fugl né fiskur eða að það eru einhver atriði þarna sem að þola ekki dagsins ljós, ég giska að hún komi 31 mars til þess að fólk sé í páskafríi þegar að það les hana og þingið í fríi, með þessu voni menn að reiðin verði að mestu runninn af fólki og 5% verði hreinlega búnir að gleyma skýrslunni!!
kveðja

2.3.2010
Þráinn Bertelsson
Ég á bara eitt að segja Þránni Bertelssyni: Þú ert rekinn!!!! Mér finnst hann ætti að sjá sér sóma í að hætta sjálfur í vinnu fyrir þá sem að hann kallar fábjána. Eftir að hafa hlustað á hann í Reykjavík í býtið Þráinn að segja upp störfum hjá Íslensku þjóðinni!! er það mín niðurstaða að þennan mann vill ég alls ekki hafa í vinnu fyrir mig, ekki aðeins segir hann að 80% þjóðarinnar séu fábjánar heldur segir hann að ómenntaðir séu örvitar!!
Kveðja
Skúli Þór
Kveðja
Skúli Þór
17.2.2010
Fátækt eða ekki??
Ég hef ekki farið varhluta af því að tala við fólk undanfarið sem að hefur mikið misst og jafnvel er verulega illa statt, ég hef meira að segja talað við fólk sem að ekkert átti og missti ekki neitt.
Ég hef hitt fólk sem að er verulega vansælt af því að það kemst ekki í bæði golfferð og skíðaferð þetta árið en á sama tíma hef ég hitt fólk sem að er himinglatt yfir því að eiga fyrir mat og geta borgað leiguna, mér finnst eins og verðmætamatið og viðhorfið hjá stórum hluta fólks í þessu landi sé orðið verulega brenglað.
Ég var að lesa grein í einhverju blaði um daginn og ég var mjög hrifinn af innihaldi hennar, sem að í meginatriðum var að það sé ekki ástæða til að bíða með að lifa lífinu þar til að einhverjum áfanga hefur verið náð s.s. þegar að ég verð búinn að borga skuldirnar þá get ég farið að vera hamingjusamur eða þegar að ég verð búinn að fá mér einbýlishús þá verð ég hamingjusamur, allt þetta er tómt bull líttu í kringum þig það er fullt að frábærum hlutum þar...
Gullmoli dagsins: Í dag er tímin til að vinna eins og þú þurfir ekki á peningum að halda, elska eins og enginn hafi nokkru sinnum sært þig og dansa eins og enginn sé að horfa á þig.
Höf: ókunnur.
Kveðja
Skúli þór

16.2.2010
Geimdagur 156795 geimdagbók!!
Lítið hefur á daga mína drifið undanfarna viku nema kannski að ég hef verið á kafi í að kaupa og selja bíla. Ég fór í alveg þrlskemmtilegt fimmtugsafmæli hjá honum Heiðari vini mínum síðasta laugardag þar tróðu upp hljómsveitir meðal annars Skriðjöklarnir og það var mikið dansað flottur kall hann Heiðar.
Var að komast að því í dag að börnin eru í fríi það sem eftir lifir viku og langaði í sumarbústað en ég var víst sá síðasti á Íslandi að átta mig á þessu svo að ég finn engann bústað til leigu, kannski ég blási bara sundlaugina hennar Láru Karolínu upp í stofunni, hengi litlar stjörnur í stofuloftið og liggi svo bara þar og þykist vera í bústað!!
Í kvöld byrjar 16 liða úrslit meistaradeildar svo að ég verð nelgdur yfir því næstu kvöld auk þess að fara nokkrar ferðar upp á Skaga að leigja út íbúðir....
Herdís litla vísu kveður
og kveður mig í kútinn
verð ég þá að vera séður
og kyssa hana á stútinn.
Spakmæli dagsins: Auðvelt er að komast hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert.
Góðar stundir.
Skúli Þór.

Flettingar í dag: 20
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 29
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 83312
Samtals gestir: 31802
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 23:57:05