Blogg

28.4.2008

Með barn í maganum

Ég var mikið móðgaður í dag, Lára kom heim með tvær vinkonur sínar og þær komu fram í eldhús byrjuðu á því að tilkynna að mér að þær væru svangar.
En svo tóku ósköpin við, sú minni horfir upp á mig og spyr svo hvort að ég sé með barn í maganum?? Lára horfir hneyksluð á hana og segir þetta er ekki mamma mín þetta er pabbi minn!! og pabbar eru ekki með börn í maganum.   Ég var ekki nema nýbúinn að jafna mig á sjokkinu fór að eldavélinni til að hræra í pottunum þegar að sú stærri lítur á mig og spyr, "ert þú Jói Fel" nú var mér öllum lokið og ég svara ósköp rólega nei ég er ekki Jói Fel, Lára segir við þær þetta er sko enginn Jói þetta er pabbi minn og hann heitir Skúli.
Út frá þessu spunnust miklar umræður þeirra á milli sem að enduðu með því að þær sættust á að sennilega léki ég bara Jóa fel en héti í alvöru Skúli.

Kveðjur

Skúli Þór

Skrifað 28.4.2008 kl. 22:00 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.4.2008

Almenningur??

Um hvaða almenning er forsetisráðherra að tala þegar að hann segir að almenningur geti ekki sætt sig við aðgerðir vörubílstjóra, ef að hann hefði þurrkað mesta kúkinn af gleraugunum sínum þá hefði hann séð að það var meira um "almenning" í þessum mótmælum en "vörubílstjóra" ekki það að vörubílstjórar geti verið almenningur!!
Þessar aðgerðir lögreglunar voru í besta falli óheppilegar en í versta falli ólöglegar og alveg örugglega ósiðlegar þar sem að baki þeim lá hreint ótrúleg einræðishyggja og tilburðir til þess að berja þjóðina til hlýðni.
Ég er búin að hitta fólk á síðasta sólahring sem að ætlar að taka þátt í næstu aðgerðum og með það í huga að láta lögregluna finna fyrir því, ég hafði áhyggjur af því að einmitt þetta myndi gerast og það er að gerast.
Semsagt með ofbeldi kallar þú fram ofbeldi, ég er hræddur um að Björn karlinn sé búinn að skíta upp á bak og hvað gerir hann þá, jú fer í opnunarpartý hjá LEX lögfræðistofu í gærkvöldi og styður við bakið á þeim sem að mest græða á þeim vandræðum sem að ráðamenn þjóðarinnar eru búnir að koma þjóðinni í.

Kveðja

Skúli Þór

Skrifað 23.4.2008 kl. 13:27 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.4.2008

Fjölskyldudagur

Við fjölskyldan fórum í fjölskylduferð í gær og byrjuðum að skoða grasagarðinn og þvottahúsið í Laugardal, svo var ferðinni heitið út í Hraun og þar fundum við græna kaffivél með bleikri innstungu og náðum að klifra í sprungum og klettum.
Svo ætluðum við í fjöruna en urðum frá að hverfa vegna þess að Lára klemmdi sig á bílhurðinni og við fórum bara heim.
Þegar að heim var komið elduðum við svartfuglinn sem að ég skaut á föstudaginn þegar við vinirnir úr vinnunni hjá mér fórum á sjófugl með Agnari bróðir.
Ég setti inn myndir úr ferðinni í laugardalinn og hraunið.



Kveðja

Skúli Þór

Skrifað 21.4.2008 kl. 8:25 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.4.2008

Komnar myndir

Jæja þá tókst mér lokins að koma inn einhverjum myndum endilega kíkja á þær..

Kveðja

Skúli Þór

Skrifað 15.4.2008 kl. 23:37 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.4.2008

Hausinn af !!!

Hvað er að þessum mönnum sem að stjórna okkar blessaða landi, það er eins og það komist ekkert annað að í hausnum á þeim en að hækka stýrir vexti.
Ég sé þetta fyrir mér í seðlabankanum þegar að einn af aðstoðamönnum Davíðs mætir inn  á skrifstofu hjá honum og segir að það vanti klósettpappír og svarið er: Þá verðum við bara að hækka stýrivexti.
Var ekki búið að reyna þetta nokkru sinnum, þetta er eins og að senda Geðibankan í Evróvisíón ár eftir ár og vona að hann vinni að lokum ( tel það reyndar líklegra en þetta með stýrivextina).
Svo koma menn eins og Geir Haarde og segja okkur að vörubílstjórar séu hryðjuverkamenn og það verði ekki samið við þá fyrr en þeir hætta að mótmæla ( hélt að  þetta væri bara í kína)  nei það er sennilega komið að því að þjóðin öll ekki bara bílstjórar taki sig saman og sýni hver ræður.

Kveðjur

Skúli Þór

Skrifað 10.4.2008 kl. 12:08 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.4.2008

Vá bara vetur

Skoða nánar

3.4.2008

Klikkaðir þessir Leedsarar!!!

Skoða nánar

3.4.2008

Þetta úti á landi lið (hehehe)

Skoða nánar

3.4.2008

Apríl byrjaður

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 120
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 35
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 83262
Samtals gestir: 31781
Tölur uppfærðar: 17.3.2010 23:19:27