Blogg

27.11.2008

GRÍMUBÚNINGA AFMÆLI HJÁ LÁRU KAROLÍNU

ÞAÐ VAR GRÍMUBÚNINGA AFMÆLI HJÁ LÁRU KAROLÍNU UM SÍÐUSTU HELGI OG FÓR OKKAR DAMA Á KOSTUM SEM SYLVÍA NÓTT.  VIÐ HÖFUM ALLTAF VITAÐ AÐ DAMAN VÆRI GÆDD LEIKLISTAR HÆFILEIKUM EN Í ÞETTA SKIPTI TOPPAÐI HÚN ALLAR FYRRI FRAMMISTÖÐUR OG HÉLT KARAKTER ALLAN TÍMANN:)))  ÉG ER BÚIN AÐ SETJA MYNDIR Í ALBÚM OG LÍKA ÚR AFMÆLINU HANS ALBERTS LOGA. 
ENDILEGA KÍKIÐ Á NÝJU ALBÚMIN:))
BESTU KVEÐJUR
DÍSA

Skrifað 27.11.2008 kl. 19:35 af DÍSA

Bein slóð á færslu

13 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.11.2008

Að slökkva elda..

Það er gaman að fylgjast með ríkisstjórn og fjárfestum þessa lands núna, þeir eru allt í einu komnir í þá stöðu sem að sauðsvartur almúginn hefur þurft að standa í undanfarinn misseri.
Já það er staðan sem að kemur upp um hver mánaðarmót þegar að launin duga ekki fyrir reikningunum og þá fara menn að slökkva elda það er að segja borga inn á sem flesta til að halda þeim til friðs, og svo vanalega þegar að menn halda að það sé allt í lagi þá gerist eitthvað nýtt.
Bíllinn bilar eða börnin þurfa ný föt og þá hefst leikurinn upp á nýtt.
Já þeir eru í sömu stöðu hjá ríkisstjórninni rétt búnir að leysa eitt mál þá kemur það næsta og þá vanalega erfiðara og stærra.
Ég sting upp á því að við fáum einhvern verka eða verslunarmann ( já og eða konu ) til að taka að sér stjórn á fjármálunum það ætti að nást fyrir hádegi hjá venjulegum manni sem að hefur gert þetta alla æfi.
Ég held að þessir háu herrar og frúr sem að stýra hjá okkur málum ættu að hætta að tala um hvað þetta sé erfitt og fara að gera eitthvað, þau þurfa alveg eins og við hin að taka á málunum ég man í það minnsta ekki eftir því að bankinn bíði eftir lausn á meðan að ég er að tala um hvað þetta sé erfitt hjá mér...

Kveðjur

Skúli Þór

Skrifað 16.11.2008 kl. 14:09 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.11.2008

Góð grein

Já það má segja að hálfgerð bloggkreppa hafi verið í gangi, en nú er best að enda hana í það minnsta um sinn, ég fékk þessa grein senda og fannst hún þess eðlis að ég yrði að setja hana hér inn.

Grein í Morgunblaðinu 29. okt. 2008:  
 
 
            STJÓRNVÖLD sviku þjóðina. Þau báru ábyrgð á bönkum, fjármálastofnunum,
eftirlitsstofnunum, einkavæðingum, þeim var treyst fyrir velferð
íslenskra heimila, framtíð barnanna okkar, en í stað þess að sinna
starfi sínu dorguðu þeir í rólegheitum með snekkjueigendum, dorguðu og
sváfu meðan þjóðin brann.
      Stjórnvöld studdu auðmenn af heilum hug, blésu út afrek þeirra, þáðu boð
þeirra, sleiktu diska þeirra, en nú eftir hrunið kenna þau þjóðinni um,
þjóðin hafði verið á neyslufylliríi. Forsætisráðherra varð að biðja guð
um að blessa þjóðina.
      Útrásarvíkingar koma hver á eftir öðrum í viðtöl við fjölmiðla, lýsa
yfir sakleysi sínu, undrun sinni á því sem gerst hefur, sjálfir komu
þeir hvergi nærri, vissu ekki einu sinni af þessu.
      Prestar og aðrir vitringar sem tóku ekki þátt í neyslufylliríi
þjóðarinnar en aka samt um á margra milljóna króna jeppum minna þjóðina
á að nú sé tími sannleikans runninn upp, nú höfum við foreldrar loks
tækifæri til að sinna fjölskyldum okkar, hugsa um börnin okkar, sýna
umhyggjusemi og kærleika, spara eins og við lifandi getum.
Stjórnvöld og fjölmiðlar taka undir orð þeirra.
       Hvern fjandann halda þau að við höfum verið að gera undanfarin ár?
Þorri þjóðarinnar er almenningur sem hefur aldrei tekið þátt í
neyslufylliríi stjórnvalda og auðmanna. Almenningur er fólk sem hefur
unnið hörðum höndum við að koma þaki yfir höfuðið, borga skuldir sínar,
mennta börnin sín, svo útkeyrt af vinnu að það hefur aldrei haft tíma
til að detta í það með stjórnvöldum og ríkri hirð þeirra. Enda aldrei
verið boðið í þau partí.
        Því frábið ég mér öll blessunarorð, áminningar, kjaftæði.
Stjórnvöld og auðmenn hafa ekki einungis sett heila þjóð á vonarvöl,
gert hana að skuldugum vesalingum, fyrirlitnum af öðrum þjóðum, þau hafa
líka með háttsemi sinni og græðgi undanfarinn áratug hunsað og eyðilagt
gildin sem gerðu Íslendinga að sjálfstæðri þjóð. Virtu að vettugi
hugsjónir um jafnrétti og stéttlaust þjóðfélag, gáfu skít í mannauðinn
og náttúruna.
         Ég bið því stjórnvöld um að hlífa mér við afsökunum og innihaldslausu
bulli. Ég bið auðmenn líka um að láta það vera að væla um stöðu sína í
fjölmiðlum í von um að fá samúð þjóðarinnar.
      Ég hef enga samúð með ofangreindum. Mæður hafa aldrei samúð með þeim sem
fremja glæpi gagnvart börnum þeirra.
 
Kristín Marja Baldursdóttir

Skrifað 6.11.2008 kl. 10:19 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 18
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 121
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 83281
Samtals gestir: 31789
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 18:57:06