Blogg

12.4.2009

Bókhald???

Já ég er svo sem ekki besti bókhaldari í heimi en ég hef rekið fyrirtæki í þó nokkurn fjölda ára og ég verð að segja að allur þessi málavafstur Sjálfstæðismanna er farin að vera fáránlegri með hverri mínútu.
Að ætla sér að halda því fram að framkvæmdastjórar og þá ekki einn heldur tveir, öll stjórnin c.a. 7 manns í viðbót og svo 30+ þingmenn hafi ekki velt því fyrir sér hvaðan meginhluti rekstrarfés flokksins kom???
Öööö verð að segja að ég er ekki hissa á stjórn á þjóðinni hafi ekki tekist vel upp ef að menn eru með athyglisbrest að þessu tagi, ég sé fyrir mér á stjórnarfundi " það lagði einhver inn 30 milljónir er einhver sem að vill vita hver það var ( og allir svara nei er þetta ekki bara eðlileg fjárhæð að leggja innhjá okkur) "
Nei þeir hefðu grætt á því að viðurkenna þetta strax enda á þetta að vera flokkur í endurkomu sem " Heiðarlegur" en þess í stað eru allir uppteknir að benda hver á annan.....
Æji ég bara varð að koma þessu frá mér en ég er viss um að hvert ykkar myndi taka eftir því ef að þið fengjuð tvisvar sinnu meira inn á reikninginn en þið ættuð von á og mynduð athuga hvaðan það kemur....

Kveðja

Skúli Þór...

Skrifað 12.4.2009 kl. 13:22 af Skúli Þór

Bein slóð á færslu

22 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 121
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 83287
Samtals gestir: 31791
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 21:30:56