Blogg
1.2.2010
Undir þrýstingi
Maður er bara rétt svo búinn að tilkynna upphaf nýs bloggtíma þegar að Herdís er komin með þrýsting á mig og heimtar hér svo gott sem daglegar skýrslur, ég verð að viðurkenna að líf mitt er nú bara ekki nógu spennandi til þess að það sé hægt.
Auk þess er margt sem að á daga mína drífur ekki þess efnis að ég geti birt það á opinberum miðli sem þessum enda ekki ætlað hjartveikum, viðkvæmum eða bakveikum...
Síðustu vikur hafa farið í að skipta um bíl og er þa orðin eina svaka langloka hjá mér og er staðan sú að ég sit uppi með svartann WV Polo eftir að vera búin að fá bensann borgaðann og er að spá í að fá mér bara annann bíl og eiga tvo af því að þessi Polo er verulega þægilegur í umferðinni og líka fer Unnar Heimir bráðlega að fá æfingaleyfi og gott að hafa bíl í það.
Ég er líka að vona að fall sé fararheill þar sem að fyrstu nóttina sem að ég átti bílinn þá var ég ræstur upp klukkan 3 af því að það var bíll búinn að klessa á nýja bílinn minn, þegar að ég kom út var enginn þar bara bíll og hafði hann þá runnið úr stæði við hliðina á bílinn minn....
Þegar að ég var búinn að finna út úr þessu var klukkan orðinn hálf fimm og ég feginn að komast í rúmið.. Nú er hann kominn úr sprautun og er hinn flottasti...
Svo lét ég hér fylgja vísu fyrir hana Herdísi mína:
Alltaf kem ég inn til þín
ef mér bregðast veiðar.
Þú ert alltaf Herdís mín
þægileg til reiðar.
Kveðja
Skúli Þór

Flettingar í dag: 32
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 83358
Samtals gestir: 31816
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 14:12:01