Færslur: 2011 September

29.09.2011 13:03

Landsliðið!!

Hópur Íslands á móti Portúgal:

Markmenn
Gunnleifur Gunnleifsson, FH : Sé ekki ástæðuna fyrir þessu nema bara til að friða FH!!


Stefán Logi Magnússon, Lilleström SK: Fínn markmaður og á alveg heima í hópnum


Hannes Þór Halldórsson, KR: Hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér lengi.

Varnarmenn
Indriði Sigurðsson, Viking FK: Indriði Sigurðsson, Viking
Indriði var ekki í leikmannahópi Viking þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Molde á föstudaginn.

Kristján Örn Sigurðsson, Hønefoss BK:


Birkir Már Sævarsson, SK Brann:


Sölvi Geir Ottesen Jónsson, FC København:
Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Hønefoss BK
Hjörtur Logi Valgarðsson, IFK Gautaborg: Hjörtur Logi var ekki í leikmannahópi IFK Gautaborgar í sigrinum gegn Djurgarden?


Hallgrímur Jónasson, SönderjyskE: Hallgrímur var ónotaður varamaður í jafnteflisleiknum gegn HB Köge.


Lausir Varnarmenn:

Ragnar Sigurðsson, FC Kaupmannahöfn
Ragnar lék allan leikinn við hlið Sölva í hjarta varnarinnar í sigurleiknum gegn Bröndby.

Grétar Rafn Steinsson, Bolton
Grétar Rafn spilaði allan leikinn þegar Bolton tapaði fyrir Arsenal, 0-3, á útivelli á laugardaginn. Hann nældi sér í gult spjald í leiknum.

Haraldur Freyr Guðmundsson, Start
Haraldur Freyr stóð pliktina allan leikinn í vörn Start þegar liðið vann góðan heimasigur, 3-0, á Lilleström á sunnudaginn.


Miðjumenn
Aron Einar Gunnarsson, Cardiff City FC:
Helgi Valur Daníelsson, AIK
Jóhann Berg Guðmundsson, AZ
Eggert Gunnþór Jónsson, Heart of Midlothian FC. Eggert virðist eiga lítið upp á pallborðið hjá nýráðnum þjálfara Hearts, Paulo Sergio, og sat allan tímann á varamannabekknum þegar liðið tapaði 0-2 fyrir St. Johnstone á útivelli á sunnudaginn. Hann hefur lítið fengið að spreyta sig í deildarleikjum að undanförnu.

Rúrik Gíslason, OB
Birkir Bjarnaso, Viking FK
Matthías Vilhjálmsson, FH
Gylfi Þór Sigurðsson, TSG Hoffenheim

Sóknarmenn
Eiður Smári Guðjohnsen, AEK FC
Kolbeinn Sigþórsson, AFC Ajax
Alfreð Finnbogason, KSC Lokeren OV . Alfreð kom ekkert við sögu þegar Lokeren bar 2-0 sigurorð af Mechelen á útivelli á laugardaginn. Alfreð hefur lítið fengið að spreyta sig á tímabilinu en hann hefur einungis tekið þátt í einum leik til þessa. Þetta er miður skemmtileg staða fyrir þennan frábæra leikmann sem var besti maður Íslandsmótsins í fyrra.

27.09.2011 08:22

Leiguverð og ýmislegt annað

Eftir langt frí hef ég ákveðið að fara að skrifa um málefni líðandi stundar aftur og kemur þá efst í huga eitthvað sem tengist minni vinnu, það er að segja leiguverð og fréttum um það.

Ég las í visir.is í gær frétt um að leiguverð væri orðið svo og svo hátt og að yfirboð væru algeng, rétt er það að leigumarkaðurinn er orðinn líkt og í versta bananalýðveldi eða ekki bananalýðveldi flest setja reglur um leigu og leiguverð..
Í þýskalandi sem dæmi er ekki leyfilegt að segja upp leigusamningi nema til komi alvarleg vanskil og leiguverðið er fast út leigusamninginn, svipað er uppi á teningnum í Danmörku og Svíþjóð, það er merki um að á þessum svæðum er þroskaður leigumarkaður og eigendur leiguhúsnæðis hugsa fjarfestingu til lengri tíma sem að er óþekkt hugtak á Íslandi.
Einnig eru reglur um hversu hátt hlutfall af kaupverði eignar má leigja hana á í mörgum löndum og tel ég það gott, það tryggir að allir geta fengið húsnæði á því verði sem passar við fjárhag, enda geta flestir borgað sem nemur 7-8% af kaupverði íbúðar á ári sem í leigu sem þýðir að íbúðarleiga er hærri í miðbænum en uppi í Árbæ en það þýðir líka að leiguverð er í samræmi við kaupverð og þeir sem að kaupa eignina sem og þeir sem lána þeim ( Íbúðalánasjóður) geta reiknað út áætlaðar tekjur af eiginni og séð hvort að kaup a henni eru raunhæf.
Hér er kominn tími á að farið verði í að setja leikreglur enda er óraunhæft að ætla að allir sem að eru að koma út á markaðinn eftir langtíma skólagöngu hafi 6-10 milljónir í vasanum til að kaupa íbúð, reglur sem tryggja rétt leigjanda myndu líka koma í veg fyrir að ungt fólk hengdi sig í klafa skulda frá byrjun sambúðar sem í mörgum tilfellum endar með skilnaði enda álagið ómannlegt.

Vona að einhverjum þyki þessi skrif mín skili einhverju..

Takk fyrir að lesa..

Skúli Þór
  • 1
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 35
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 104496
Samtals gestir: 37562
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:27:50